Til sjúklinga
Greiðslur sjúklinga vegna vefjarannsóknar
Vefjarannsóknarstofan ehf er rekin á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ). Heilbrigðisyfirvöld ákvarða kostnaðarhlutdeild sjúklings í hverju sýni. Svo segir í 17. grein reglugerðar nr. 1495-2025 um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu:
Fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknarstofu og vegna rannsóknar á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknarstofu, sbr. þó 13. gr., skulu sjúkratryggðir greiða sem hér segir:
- Sjúkratryggðir almennt, 3.716 kr.
- Aldraðir og öryrkjar, 2.477 kr.
- Börn greiða ekkert gjald.
Skoða reglugerðina í heild sinni.
Þegar búið er að afgreiða sýnið og vefjasvar eða sjúkdómsgreining hefur verið send lækni sjúklingsins er stofnuð innheimtukrafa fyrir hlut hins sjúkratryggða sem birtist í heimabanka sjúklings.