Til lækna

Vefjarannsóknastofan tekur við vefjasýnum, öðrum en blóðsýnum, sem læknar taka.

Frágangur sýna
Sýni þurfa að berast í formalíni, í vel lokuðum ílátum, merktum nafni og kennitölu sjúklings og tegund sýnis. Á beiðni þarf að koma fram, nafn og kennitala sjúklings, tegund sýnis og þær klínísku upplýsingar sem máli skipta við greiningu sýnis auk nafns og aðseturs læknis. Þeir læknar sem aðgang hafa að Sögukerfi geta sent beiðnir með rafrænum hætti, en útprentuð beiðni þarf alltaf að fylgja sýni. Í þeim tilvikum er hægt að senda svör einnig rafrænt en annars eru svör send bréflega.

Læknar og lífeindafræðingar Vefjarannsóknarstofunnar eru ávallt reiðubúnir til að veita ráðleggingar um meðhöndlun sýna.

Beiðni – eyðublað til útprentunar

Beiðni – eyðublað á wordformi

Ábendingar / kvartanir
Læknar stofunnar eru ávallt reiðubúnir til að ræða rannsóknarsvör Vefjarannsóknarstofunnar. Ábendingum eða kvörtunum um einstök svör eða sýni er eðlilegt að beina til þess meinafræðings sem svaraði sýninu. Ef um er að ræða ábendingar eða kvartanir sem ekki tengjast ákveðnu sýni er eðlilegt að beina þeim til framkvæmdastjóra.